Ég hef starfað sem slökkviliðs og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðan 2015 og hef víðtæka reynslu af neyðarþjónustu utan spítala. Í mínu daglega starfi tek ég á móti fjölbreyttum og krefjandi útköllum þar sem skjótar ákvarðanir, fagleg vinnubrögð og rétt viðbrögð skipta sköpum.
Ég er leiðbeinandi hjá Sjúkraflutningaskóla Íslands og hef komið að umsjón og kennslu bæði í grunn- og framhaldsnámi sjúkraflutningamanna. Auk þess hef ég tekið þátt í þjálfun og innleiðingu nýs starfsfólks innan Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og sinnt kennslu í sérhæfðri endurlífgun fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Ég er löggiltur leiðbeinandi ALS (Advanced Life Support) samkvæmt stöðlum Evrópska endurlífgunarráðsins (ERC) og hef einnig starfað sem leiðbeinandi fyrir utanríkisráðuneytið, þar sem ég hef komið að Tactical Combat Medic þjálfun fyrir úkraínska hermenn í Bretlandi.
Í kennslu minni legg ég áherslu á raunhæfa og hagnýta fræðslu sem byggir á reynslu úr alvöru aðstæðum. Markmið mitt er að veita fólki sjálfstraust og færni til að bregðast rétt við þegar sekúndur skipta máli.
Hafðu samband við okkur til að fá tilboð eða frekari upplýsingar.
Hafðu samband