Námskeið fyrir alla

4 klst. skyndihjálparnámskeið

Alhliða skyndihjálparnámskeið sem nær yfir grunnendurlífgun, notkun AED, blæðingar, áverka, bráð veikindi og sálrænan stuðning. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa áður sótt skyndihjálparnámskeið.

Hvað lærir þú?

  • Fjögur skref skyndihjálpar
  • Grunnendurlífgun (CPR)
  • Notkun AED hjartastuðtækis
  • Blæðingar og áverkar
  • Viðbrögð við köfnun
  • Bráð veikindi (brjóstverkur, astmi, stroke)
  • Sálrænn stuðningur

Fyrir hverja?

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings, bæði einstaklingum og starfsfólki fyrirtækja.

Lengd og uppbygging

Námskeiðið er 4 klukkustundir, með stuttum hléum eftir þörfum. Kennslan er blanda af fræðslu og verklegum æfingum, með áherslu á raunhæfar aðstæður og rétt handbragð.

Viltu bóka námskeið?

Hafðu samband við okkur til að fá tilboð eða frekari upplýsingar. Við komum einnig á vinnustaði.

Hafðu samband
Spurt og svarað

4 klst. skyndihjálparnámskeið

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings, bæði einstaklingum og starfsfólki fyrirtækja.
Nei. Engin forkunnátta er nauðsynleg. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem hafa áður sótt skyndihjálparnámskeið.
Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar, grunnendurlífgun (CPR), notkun AED hjartastuðtækja, blæðingar, áverka, bráð veikindi og sálrænan stuðning.
Kennslan er blanda af fræðslu og verklegum æfingum, með áherslu á raunhæfar aðstæður og rétt handbragð.
Námskeiðið er 4 klukkustundir, með stuttum hléum eftir þörfum.
Já. Þátttakendur læra grunnendurlífgun og notkun AED hjartastuðtækja og fá tækifæri til að æfa sig verklega.
Leiðbeinendur eru starfandi bráðatæknar með mikla reynslu af sjúkraflutningum, neyðarviðbrögðum og kennslu.
Já. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir vinnustaði, skóla, íþróttafélög og aðra hópa og er hægt að halda á staðnum.
Já. Námskeiðið fjallar um streitu í neyðartilfellum, tilfinningaleg viðbrögð eftir atvik og hvernig veita má einfaldan sálrænan stuðning á vettvangi.
Hægt er að skrá sig eða bóka námskeið í gegnum vefsíðu Fyrsta viðbragðs, með tölvupósti eða síma.