Sérsniðin námskeið

Sérhæfð námskeið

Við bjóðum upp á sérsniðin námskeið sem eru aðlöguð að þörfum hvers hóps. Hvort sem um er að ræða fyrirtæki, stofnanir, íþróttafélög eða aðra hópa, getum við sett saman námskeið sem hentar ykkar aðstæðum.

Dæmi um sérhæfð námskeið

Íþróttafélög

Skyndihjálp á íþróttavelli, viðbrögð við algengum meiðslum og bráðatilvikum í íþróttum.

Fyrirtæki

Skyndihjálp á vinnustað, notkun hjartastuðtækis og viðbrögð við slysum.

Skólar og leikskólar

Skyndihjálp fyrir börn, viðbrögð við köfnun og algengum slysum barna.

Útivistarfélög

Skyndihjálp í óbyggðum, viðbrögð við ofkælingu, hitaslagi og öðrum útivistaráföllum.

Við komum til ykkar

Við komum á vinnustaði og aðlögum námskeiðin að aðstæðum, starfsemi og fjölda þátttakenda. Þannig getum við kennt í raunhæfu umhverfi og tekið dæmi sem tengjast ykkar starfsemi.

Hvað er innifalið?

  • Bókleg fræðsla og verkleg þjálfun
  • Allur kennslubúnaður
  • Staðfesting um þátttöku ef óskað er
  • Sveigjanleiki í lengd og innihaldi

Viltu bóka námskeið?

Hafðu samband við okkur til að fá tilboð eða frekari upplýsingar. Við komum einnig á vinnustaði.

Hafðu samband
Spurt og svarað

Algengar spurningar

Námskeiðin henta öllum – fyrirtækjum, stofnunum, íþróttafélögum, skólum og einstaklingum sem vilja læra að bregðast rétt við í neyðartilvikum.
Nei, engin forkunnátta er nauðsynleg. Námskeiðin henta bæði byrjendum og þeim sem vilja rifja upp fyrri þekkingu.
Kennslan er blanda af bóklegri fræðslu og verklegri þjálfun, með áherslu á raunhæfar aðstæður og rétt handbragð.
Leiðbeinendur eru starfandi bráðatæknar, slökkviliðs og sjúkraflutningamenn með mikla reynslu úr sjúkraflutningum, neyðarþjónustu og kennslu á landsvísu.
Já. Við komum á vinnustaði og aðlögum námskeiðin að aðstæðum, starfsemi og fjölda þátttakenda.
Já. Fyrsta viðbragð er viðurkenndur fræðsluaðili af Samgöngustofu og námskeiðið telst til endurmenntunar atvinnubílstjóra.
Námskeiðið er 7 kennslustundir (45 mín hver) og gefur 7 klukkustundir í endurmenntun.
Já ef það er óskað eftir því. Þá að námskeiði loknu fá þátttakendur staðfestingu um þátttöku.
Hægt er að hafa samband í gegnum vefsíðu eða tölvupóst. Við svörum fljótt og setjum saman námskeið eða tilboð sem hentar þínum þörfum.