Eigendur Fyrsta viðbragðs eru allir starfandi bráðatæknar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og leiðbeinendur hjá Sjúkraflutningaskóla Íslands. Við höfum haldið utan um grunnnámskeið í sjúkraflutningum fyrir starfsfólk Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og einnig séð um kennslu fyrir framhaldsnám í sjúkraflutningum um land allt.
Námskeiðið er ætlað starfandi sjúkraflutningamönnum, bráðatæknum, slökkviliðsmönnum og öðru heilbrigðisfólki sem starfar í bráðaþjónustu utan spítala.
Leiðbeinendur eru löggildir af Evrópska endurlífgunarráðinu (ERC) og hafa sinnt kennslu hjá Landspítalanum í sérhæfðri endurlífgun. Þeir hafa einnig unnið sem leiðbeinendur hjá utanríkisráðuneytinu þar sem þeir kenna Tactical combat medic þjálfun.
Hafðu samband við okkur til að fá tilboð eða frekari upplýsingar. Við komum einnig á vinnustaði.
Hafðu samband