Ég starfa sem bráðatæknir og slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og hef gert það frá árinu 2015. Þar áður starfaði ég sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Skagafjarðar frá árinu 2011. Ég hef því víðtæka reynslu af neyðarþjónustu utan spítala og hef sinnt fjölbreyttum og krefjandi útköllum þar sem skjótar ákvarðanir, fagleg vinnubrögð og rétt viðbrögð eru mikilvæg.
Ég starfa sem leiðbeinandi hjá Sjúkraflutningaskóla Íslands og hef komið að kennslu bæði í grunn- og framhaldsnámi sjúkraflutningamanna. Jafnframt hef ég sinnt kennslu fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, þar sem ég hef komið að bæði nýmenntun og endurmenntun starfsfólks, í slökkvifræðum sem og á sjúkraþættinum. Hef verið með endurmenntun í sjúkraflutingum fyrir önnur slökkvilið.
Ég hef um árabil annast kennslu í skyndihjálp og brunavörnum fyrir almenning. Ég er löggiltur ALS-leiðbeinandi hjá Evrópska endurlífgunarráðinu (ERC). Kenni ALS hjá Landspítalanum ásamt ALS og ILS fyrir Sjúkraflutningaskólann.
Auk þess hef ég starfað sem leiðbeinandi fyrir utanríkisráðuneytið, þar sem ég kom að Tactical Combat Medic-þjálfun fyrir úkraínska hermenn í Bretlandi í samstarfi við breska, hollenska og bandaríska herinn. Ég hef einnig komið að þjálfun hermanna í Litháen fyrir hönd utanríkisráðuneytisins. Hef sinnt kennslu fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fyrir slökkvilið.
Í kennslu minni legg ég ríka áherslu á raunhæfa og hagnýta fræðslu sem byggir á reynslu úr raunverulegum aðstæðum. Markmið mitt er að efla færni og sjálfstraust þátttakenda þannig að þeir séu vel í stakk búnir til að bregðast rétt við þegar þörfin er mest.
Hafðu samband við okkur til að fá tilboð eða frekari upplýsingar.
Hafðu samband