Skyndihjálp og endurmenntun í utanspítalaþjónustu á Íslandi. Kennslan byggir á raunverulegri reynslu úr bráðaþjónustu og þeim aðstæðum sem fólk mætir í alvöru neyðartilvikum.
Fyrsta Viðbragð er fyrirtæki sem sérhæfir sig í skyndihjálp og endurmenntun í utanspítalaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið er skipað 4 eigendum, sem allir eru starfandi bráðatæknar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Auk þess eru þeir leiðbeinendur hjá Sjúkraflutningaskóla Íslands og hafa haldið utan um grunnnámskeið í sjúkraflutningum fyrir starfsfólk Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, og einnig hafa séð um kennslu fyrir framhaldsnáms í sjúkraflutningum um land allt.
Þeir eru löggildir af Evrópska endurlífgunarráðinu (ERC), og hafa sinnt kennslu hjá Landspítalanum í sérhæfðri endurlífgun og einnig unnið sem leiðbeinendur hjá utanríkisráðuneytinu, þar sem þeir kenna Tactical combat medic þjálfun fyrir úkraínska hermenn í Bretlandi.
Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar um námskeið eða til að bóka námskeið.